Atburðurinn!!!

30. maí 2007 klukkan 00:30
Ágætu félagar og takk fyrir frábæra skemmtun.  Við höfum nú endurskírt 26. maí sem "Bolludagurinn" vegna ástæðna sem augljósar eru þeim sem mættu!  Hún mæltist vel fyrir og ég held við höfum verið öll búin að gleyma hvað bolla er góð - og gerir manni gott.
En semsagt.  Hér er uppskriftin að bollunni.  (Það er bannað að endurprenta þetta, t.d. í Húsfreyjunni)
2 flöskur af Vodka
1 flaska af Apríkósulíkjör (ekki Líkkjör enda mun það vera allt annað!)
2 ltr. trópí
6 lítrar sprite zero.  (Þarna kemur heilsuþátturinn inn!  Low sugar!)
Þetta blandast svo oft sem þurfa þykir.  Ég hef til gamans nefnd bolluna "Sumaralsæla".  Það má leika sér með orðanotkunina.  T.d. Sum aralsæla eða Sumar alsæla eða Sumarals æla - en það mun nú vera sísta útfærslan af bollunni.
Best er að bera bolluna fram kalda eða með klökum og alþekkt var fyrr á árum að setja ávexti í bolluna og saklaust sveitafólk sem vildi ekki drekka áfengi drakk stundum í sig ávextina - sem oftast voru drukknaðir í áfengismagni.  Það skal þó tekið fram að eftir því sem líður á kvöldið (lesist: drykkjuna) skiptir nákvæmt hitastig á bollunni afar litlu máli!
En aftur undirbúningsnefndin þakkar fyrir sig.  Það var stórkostlegt að upplifa svolítið aftur þá góðu stemmingu og þann skemmtilega anda sem ríkti í skólanum - ekki hvað síst með neónhring í svitabaði á dansgólfinu.  Bara gaman.

 
Kveðja,
Bjarni

En svona sem partýbremsa, þá lofaði ég líka að setja hér inn reikningsupplýsingar fyrir þá sem eiga eftir að greiða.
Semsagt kt. 230368-5389, reikn 515-26-368, kr. 5.000,-
Bjarni Ármannsson

Myndir frá endurfundunum

29. maí 2007 klukkan 21:29
komnar inná myndasíðuna undir albúminu Stóri dagurinn - Partý. Myndir þessar eru í boði Þóru Halldórsdóttur sem kom mynddisk á mig fyrr í dag.

Eitthvað síaði ég út af hreyfðum myndum og tvítekningum en þetta eru engu að síður einhverjar 140 myndir!

Þökkum Þóru kærlega fyrir þær.

Enn er þó pláss fyrir fleiri myndir ef einhver lumar á og vill sýna okkur hinum þær.


Viktor Elvar Viktorsson

Takk fyrir frábæran dag - Myndir væntanlegar

29. maí 2007 klukkan 12:57
Í kvöld koma væntanelga inn myndir frá deginum góða.  Þeir sem eiga myndir mega endilega senda þær á viktor@vr.is og þeim verður komið á síðuna.

Meira síðar
Viktor Elvar Viktorsson

26. maí - nálgast. Ertu búinn að tékka á vinunum?

24. maí 2007 klukkan 18:12
Jæja, okkur er enginn vandi né vanbúnaður á höndum.
Nú eru bara 2 dagar í okkar endurfundi!
Það stefnir í góða þátttöku og við höfum gert nokkrar breytingar á dagskránni til að tryggja skemmtilegheitin allan daginnn!
 
Í fyrsta lagi hefjast skólaslitin kl. 14.00 og þá munu þeir bræður Björn Þorri og Viktor Elvar afhenda verk eftir Bjarna Skúla Ketilsson (Baski) sem virðingarvott frá okkur, 10 og 20 ára útskriftarnemum.
 
Síðan förum við kl. 17.00 ÖLL í Haraldarhús við Vesturgötu (á móti Bíóhöllinni).  Rúta verður frá Fjölbrautarskólanum.
Athugið að við höfum EKKI aðskilin forpartý.  Heldur mæta ALLIR í Haraldarhús.
 
MUNIÐ EFTIR SVÖRTU HÚFUNUM OG RAUÐU BINDUNUM - AFAR MIKILVÆGT. (EÐA EITTHVAÐ RAUTT)
 
Síðan verður farið í Safnaskálann um hálfáttaleytið. (einnig Rúta) og þar verður setist að snæðingi sbr. fyrri pósta.
Síðla kvölds - eða þegar líða tekur að miðnætti fer rútan sína síðustu ferð að sal FVA þar sem dansleikur ársins mun eiga sér stað.
 
Munið að við erum frábær - OG við  biðjum við ykkur að senda póst á þetta netfang og staðfesta þátttöku.  Eins að hringja út fólk sem ekki er enn búið að láta vita.
 
Og ef þið eruð í vafa.  Nú þá bara hringja og tékka á gömlu félögunum.
Og aftur:  Mikið líturðu vel út beibí - frábært hár.
 
Undirbúningsnefndin hláturmilda hlakkar til að sjá ykkur. Við erum að tala um að rifja upp Duran Duran, Diskó, Harða rokkið og allan pakkann!
 
Kveðja,
Bjarni, Björn, Eiríkur, Helgi, Heiða og Halla

Viktor Elvar Viktorsson

Áratugir frá Akranesi - Hæ, hó jibbijei og jibbijijæ, það er að koma 26. maí

24. maí 2007 klukkan 18:10
Ágætu 10 ára og 20 ára útskriftarnemar  frá FA og FVA   Eftir spennandi tíma um áratuga skeið er komið að því.  Að sækja uppeldisstöðvarnar heim og hegða sér eins og í "gamla daga".

Skemmtilegast er að skoða myndirnar þar en endilega skráið skemmtilega viðburði eða kommenterið á myndir sem þar eru!  Já, svona vorum við einu sinni.
Við vorum eightís og næntís með stæl! 
Takk fyrir að senda netföngin ykkar til undirbúningsnefndarinnar. 
Nú hvetjum við ykkur til að hringja í vinina  frá þessum tíma.  Fletta í skólablöðunum og fá fleiri netföng - og  að sjálfsögðu að tryggja öfluga mætingu.
Undirbúningsnefndin er búin að taka út forskot á sæluna.   
 
Hlökkum til að sjá ykkur þann 26ta.
 Muna dagskrána:
 

Dagskráin þann 26. maí verður eftirfarandi:

14.30       Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem afmælisárgangar afhenda                                   

                skólanum gjöf

17.00       Móttaka fyrir 20 ára júbílanta á vegum Akraneskaupstaðar haldin í  

                Haraldarhúsi.  (10 ára í  Skrúðgarðinum)

19.30              Kvöldverður að Safnaskálanum þar sem boði verður upp á gómsætar

veitingar,svo sem sítrónumarineraða lúðu, marineraðan kjúkling á spjóti,      nautacarpaccio, dádýralundir, lambalæri og súkkulaðiköku með ís. Ýmis heimalöguð skemmtiatriði verða í boði og hér með er auglýst eftir áhugasömum skemmtikröftum sem vinsamlega láti vita af sér í neðangreind netföng.

23.30       Að kvöldverði loknum verður slegið upp dansleik en fjörið mun halda áfram           

                fram á rauða nótt.

  
 Það verða rútur sem keyra á milli staða.

Póstur frá Bjarna Ármans
Viktor Elvar Viktorsson

takiði nálina af mér, æ,æ,æ

17. maí 2007 klukkan 18:54
Ég fór á cowboymynd í gær, spennan var ótrúleg og ég varð ær....
Mér líst vel á bandið.  Allir sem farið inná síðuna.  Sendið endilega "link" á gömlu skólafélagana.  Nú skulum við öll hittast og skemmta okkur - eins og okkur einum er lagið.
Bjarni Ármannsson

Eins og hinir

16. maí 2007 klukkan 20:44
 Þá liggur það fyrir að það verður stórdansleikur á sal FVA þann 26. maí n.k.

Hljómsveitin Eins og hinir munu stíga á stokk en fyrir þá sem ekki þekkja til þeirra þá er þetta upprunaleg liðsskipan Land og sona þegar hljómsveitin sló í gegn með lögum eins og Vöðvastæltur og Áhyggjulaus. Eitthvað sem við í 10 ára árgangnum munum í það minnsta!

Miðaverð er áætlað 2000 krónur og barinn verður að sjálfsögðu opinn.

Ekki er lokum fyrir það skotið að einn frægari dúett landsins stígi einnig á stokk en samningaviðræður eru í fullum gangi við þann ágæta dúett. Sjáum hvað setur!


Viktor Elvar Viktorsson

Bréfin farin að berast og stemmingin eykst

26. apríl 2007 klukkan 23:32
Nú ætti síðan okkar að vera á hvers manns vörum þar sem bréfin frá undirbúningshópnum eru að berast í hús.

Hvetjum við því alla sem eiga í fórum sínum myndir og vilja deila þeim með okkur að senda þær á viktor@vr.is texti má gjarnan fylgja með ef vilji er fyrir því.

Dagskráin er annars kominn upp hér vinstramegin á síðunni. 

Mjög mikilvægt er að allir sem ætla sér að mæta sendi tölvupóst á bjarnheidurh@simnet.is eða helgi@steindal.net fyrir 20 ára útskriftarnema og eirikur@landslog.is eða viktor@isl.is fyrir 10 ára útskriftarnema.

Endilega kvittið svo í Gestabókina hvort svo sem þið mætið eður ei

Mætir Suddi?  Mun Bjarni taka lagið?  Fer einhver úr að ofan!?
Viktor Elvar Viktorsson

Ég er óvinnufær...

12. apríl 2007 klukkan 09:53
Ekki af því að við bankastjórinn höfum misst tökin í gærkveldi, alls ekki, heldur af spennu og óþreyju vegna 26. maí.  Ég var satt að segja  búinn að gleyma því hvað þessi menntaskólaár voru ótrúlega skemmtileg og viðburðarík.  Og þegar maður fer að lesa gömlu skólablöðin og skoða myndir, þá er ekki laust við að það grípi um sig smá nostalgía...  Verum nú dugleg að nálgast hvert annað og ýta undir góða þátttöku.  Það er lykillinn að vel heppnaðri hátíð í vor!

BÞV
Björn Þorri Viktorsson

Myndefnið fæðist

11. apríl 2007 klukkan 23:27

Allar þessar myndir færa okkur góðar minningar.  Þær verða ljóslifandi 26. maí n.k.  Kannski höfum við eitthvað breyst - en inn við beinið þau sömu.  Enga vitleysu nú.  Sendið okkur myndir og búum til frábæra stemmingu fyrir endurfundina.  Og gleymið ekki kjaftasögum eða einhverjum óstaðfestum fregnum af samnemendum.  Það man hvort eð er enginn sannleikann eftir allan þennan tíma! Bjössi og Bjarni - Skál.

Bjarni Ármannsson

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn